|
|
06.05.2008 09:57:50 / erna
Sælt verið fólkið,
Það er komin tími til að blogga. En þannig er mál með vexti að einu sinni var þessi dagur notaður til að blogga og þá var bloggað um stuðblogg kanski ég hafi bara stuðblogg nuna 
 Þarna er fólkið í gulllandi að skemmta sér svaka vel
 Skínandi hresst fólk.

Þarna eru leikföng sem er mjög ánægð
 Þarna er maður alveg að springa úr gleði og ákvað að mála sig í framan.
Brandarar
My grandfather always said, "Don't watch your money; watch your health." So one day while I was watching my health, someone stole my money. It was my grandfather. (Jackie Mason)
Gulli betra er göfugt nafn
Five men were selecter for a survey. They were taken away to a hotel called the goldings. There they found the place covered top to bottom in golden fittnigs and furnishings, the doors were gold , the floor was gold , the roof was gold , the stairs were gold .Every thing in the lobby was gold.
|
They were shown to there rooms by a maid , she had golden hair , golden dress , golden tights , golden shoes , golden piney and a golden hat. She shown each man in to his room.
Takk fyrir mig. Vonandi hefur einhver kíkt á síðuna og hugsað hey þetta er skemmtilegt!
Gullkveðja
Erna gull
»
24.04.2008 11:07:06 / erna
Góðan daginn,
Það er sko komin tími til að blogga
Í gær var mjög skemtilegur dagur. Ég fór til Eddu og við fórum í heimsókn til Ragga. ÉG mæli ekki með að fara í strætó og setja öfugt. Það er ömurlegt. Síðan ætlaði ég að íta á takkann til að stoppa. Og þá var ég næsum því dottinn . En að gerðist ekki. Þetta var frekar fyndið. Loksins voruð við komin í Spöngina og þar hittum við Ragga og við tókum annan strætó til hans. Og síðan vorum við komin og þá fórum við að horfa á Desperate housewifes, spiluðum með geðveikum spilum. Og töluðum saman. Og borðuðum rosa góða pizzu og það hafði enginn mikla list þar sem við Raggi höfðum borðar rosa mikið af snakki og nammi!. Síðan um 12 leitið kom ég heim og þá var ég svo heppin að finna disk. Sem frændi minn hafði sungið inná árið 1993 sem hann hafði gefið mér en ég hafði týnt honum en nuna ætla ég að passa upp á hann.
Síðan er ég að fara bráðum til Spánar. Það verður ábyggilega gaman Mig hlakka bara svolítið til. Fara í spænskuskóla og vera dugleg að læra spænsku. Yndislegt. Horfa á sjónvarpið á spænsku kanski ekki eins gaman. En ég þekkti konu sem horfði stundum á spænska sjónvarpið og fanst frekar gaman þó hun skildi ekkert.
Í herberginu minu á spáni er gulldúkur, gulllampi, gullspegill , gullföt, gullbikiný, gullskartskripir, gulltöskur, gullspöng, gull skór, gull sokkar, gull blíantur, gullpenni og Erna gull.
Það er kominn sumardagurinn fyrsti. Þá kemur sólin, fuglarnir syngja söngva, ekki lengur snjór, hægt að fara í sund og sóla sig í sólinni. Ef hun kemur . En ég er svo heppin að ég verð á spáni og þá hlýtt þá get ég farið í sólbað á hverjum degi, orðið rosa brún og getið synt í sundlauginni minni og fólksins í hverfinu.
Takk fyrir mig. Hafið góðan Sumardaginn fyrsta dag.
En Björgvin fallegastur Láttu þér batna. Ég bið fyrir þér á hverjum degi
Gullkveðja Erna gull
»
17.04.2008 21:32:58 / erna
»
16.04.2008 07:31:14 / erna
Góðan daginn. Einsog þið vitið er kominn 16 apríl. Fyrir 17 árum fæddist undur fallegt barni. Að nafni Edda Rós. Allt fólkið í bænum kom að sjá hana því hún var svo falleg. Og núna í dag er hún orðin svo stór að hún getur keypt sér eitt stykki bílpróf og keyrt um allan bæinn á draumabílnum sem henni langar í. Til hamingju með afmælið Edda Rós hafðu yndislega, góðan dag. Vonandi get ég komið og gefið þér fallega gjöf í dag. Hún á afmæli í dag Hun á afmæli í dag Hún á afmæli hún Edda hún á afmæli í dag. Hún er 17 ára í dag Hún er 17 ára í dag Hún er 17 ára hún Edda Hún er 17 ára í dag  Gullkveðja Erna Gull
»
14.04.2008 21:54:45 / erna
hæhæ  Fyrirgefið hvað ég hef ekki bloggað lengi. En sagan er sú að ég læsti síðunni minni og ég mundi ekki lykilorðið en ég ætla að byrja aftur á þessari flottu gullsíðu. Já ég fór nú til akureyrar um helgina og skemmti rosa vel. Og gullið mitt hann Hannibal kom með sem er hálsmen. Já þeir sem eru með gullfíkn skýra hálsmenin sín, ég fór með rútu og hitti hana Önnu sem var með mér í sönglist og við skemmtum okkur vel í rútunni með Agnesi og við sungum og við fengum bara nafn á hljómsveit sem heitir Sultutussurnar að mati pink ponys. Ég verð nú að vera sammála að mér fanst þetta nafn eiginlega ferlega gullega flott. Þannig sultutussurnar heitir hljómsveitin. En eg er nu ekki viss hvort þessi hljómsveit mun ganga.. Því við sungum víst ömurleg lög. En laugardagurinn var þannig að ég vaknaði snemma, fór í sund. Og göngu með fallega hundinn minn sem er nátturulega gullfallegur. Sem heitir Kría og hún var svo góð að kúka svo fallegum gullkúk  . Síðan fór ég til frænda mins sem var að vinna í Brekkuskóla og fékk mér kleinu og vatn. Eftir það var haldið með frænda að fá brynjuís, sem var mjög gullega góður. En allir vita ef maður fer til akureyrar verður maður að fá sér brynjuís og ég sem safna heilum bíl sem keyrir til reykjavikur með brynjuís handa mér á hverjum degi var það alveg æðislegt að fá einn úr búðinni sjálfri, Því ég skil ekki ísinn bráðnar alltaf í bílnum. Ömurlegt! Síðan gekk ég í vma og hitti skemmtilegustu krakkanna á egilstöðum kristínu og björheiði og við vorum að gera skiltinn fyrir Me. Og var það mjög gaman. Síðan var söngvakeppni framhaldskólanna og var bara ágætlega gaman. En skemmtilegast að hitta Karl Ásgeir, Bjarka og Benjamin. Þeir eru nátturulega skemmtilegustu krakkar veraldar. En því miður eru þeir ekki fyrir gull. En ég verð að sætta mig við það. Það var kallað Vesen við fólk og blesssssssssaður og svo datt ég. Og auðvitað hlógu þeir því maður á að hlægja á óförum annarra. Þetta var skemmtileg keppni  Akureyri rokkar. En hann benjamin á afmæli í dag. Til hamingju með afmælið og hafðu góðan dag. Gullkveðja Erna Gull
»
29.12.2007 14:26:56 / erna
Hæ hæ, Lange time jeg har blogget. Jæja eg ætla að blogga á þessari síðu fyrst það eru svona margir sem skoða síðuna. En það væri samt gaman að fá komment frá ykkur sem skoðið síðuna  En það sem ég ætla að blogga um er það að afhverju er snjór ekki bara úr gulli. Þá væri miklu skemmtilegra að leika sér í snjónum. Ég myndi t.d alltaf vera að leika mér í snjónum.Ábyggilega reyna að frysta snjóinn og búa til skraut úr honum. En það væri samt erfitt en ég myndi allvegana reyna það. Plús það að þá væri snjórinn svo flottur. Þá myndi jörðin öll glitra og þá ætti maður alltaf nóg af gulli : . Þannig guð ég vil að þú breytir snjónum í gull. Því þá myndu allir vera ánægðir allavegana ég . En ætli ég hafi þetta ekki stutt í dag  Gullkveðja Erna Gull
»
10.12.2007 16:21:43 / erna
smá pása. En stofnaði aðra síðu um Akureyri.
www.blog.central.is/akur-eyri
»
06.12.2007 15:09:33 / erna
Það er bara komin desember, tímin líður svo ótrúlega hratt. Mér finst einsog það sé bara ágúst og amma og afi séu enþá á spáni. En önnin er bara ´búin ogvið taka prófin og ganga öllum ábyggilega svakalega vel . Ég er nú bara verið að einhverfast heima, læra og tala við fallegasta páfagauk sem til er. Hann heitir Grímur og hann er sko félagslindur!!!. Vill bara að allt fólkið sé í kringum hann. Segir ekkert nema þegar maður fer úr herberginu. Hann er klárlega fallegastur. Heyrðu ég held ég hafi mynd af honum einhvernstaðar. Hann er þessi litli. Hann er svo góður og sætur. 
Hlakka svo til 12. des þá er maður búin í prófunum og getur farið að skemmta sér á fullu. Síðan kemur jólaballið 17des og segi ég öllum að mæta. Kostar bara 1200 karl ekkert mikið. Gullkveðja Erna Gull 
»
05.12.2007 13:41:50 / erna
Gangi ykkur öll vel í prófunum. Kveðja Gullstelpan 
»
29.11.2007 21:44:50 / erna
Vip ég elska ykkur  Vip er besti hópur í heimi. Fullt af skemmtilegu fólki og allir svo skemmtilegir. En einn er að kveðja okkur og útskrifast hann pottþétt með láði. Erna mun sakna hans mikið og auðvitað vip líka . Gangi þér rosalega vel í prófunum og ég fékk einu sinni að vera með þér í tíma. Það var þegar ég fór í tíma fyrir Einar. Það var skemmtilegur tími en hann var stuttur. Mun sakna þín Gullkveðja Erna Gull
»
28.11.2007 19:19:28 / erna
Elsku lesendur, Ég fékk tákn frá guði um að fara að blogga. Að ég ákvað að reyna að búa til flott blogg, fyrst guð var svo góður að bjarga mér frá viskusemi mannsins. Ég hef tekið eftir því að ég er mjög heppin manneskja, en ástarmálin í molum. En það kemur seinna, allt það sem ég vil það rætist, en ef ég vil fá sætan strák nei nei, þá er maður í vondum málum. Dæmi um það að ég hef fengið allt sem ég vil. Er að ég óskaði mér strákavin fyrir tveimur árum og tveimur mánuðum seinna eignaðist ég strákavin. Sem var yndislegur vinur, en við erum þó ekki góðir vinir í dag. En það er allt annað mál, síðan óskaði ég mér að ég myndi meika að vera á spáni í þrjá mánuði og ég meikaði það. Þannig ég er sko rosalega heppin manneskja, en ástarmálin í rusli. Einsog nokkrir menn segja að guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfur og líka þeim sem trúa á hann. Síðan á ég besti ömmu og afa í heimi, bestu vini í heimi og bara allt frábært. Þannig ég er heppin manneskja. Prófin að fara að byrja og ég stefni af því að ná öllu og fari í spæsnku 203 og síðan kem ég til spánar og kann bara spænsku. En ætli maður prófi ekki að flytja þangað, þar er gott að vera. Gott veður, sætir strákar, ódýrt og mikið af gulli. Þar er bara allt það sem maður getur fengið . Þannig að nú ætla ég að óska mér að fá gullskrúfblíant í jólagjöf, því mig vantar það og mig langar að eiga gullskrúfblíant. Ég átti hann einu sinni en ég týndi honum þegar ég fór á kaffihús að gera ritgerð. Þar var ég kanski ekki það heppin en það heppin að finna gullpennaveskið mitt aftur. Ég held ég stefni á að vera sjúkraliði, síðan fer til útlanda að læra söng, síðan gerast söngkona og vinna á elliheimili og syngja fyrir gamla fólkið. Mjög gott plan. Finnst ykkur það ekki . En bara stutt blogg í dag. Bara láta vita að þessi síðan er enþá virk og mun hún ábyggilega ganga gullvel. Gullkveðja Erna Gull 
»
23.11.2007 12:54:58 / erna
»
05.11.2007 17:50:07 / erna
Gull Þessi síða er gullsíða en ég skrifa ekkert svo mikið um gull, þannig ég er að pæla að skrifa eithvað um gull. Því ég elska gull og gull er lang flottast. Gull það riðgar ekki, gull flýtur og gull brotnar ekki. Gull klæðir eiginlega öllum og maður getur verið í hvaða fötum sem er, alltaf ertu flottur. Gull er skrifað afturábak llug. Sem er flott því ég myndi vilja heita llug. Þá þyrfti ég ekki að kalla mig Ernu Gull heldur llug. Sem er miklu flottar en Erna Gull. Síðan segi ég alltaf að maður segir ekki bull heldur gull. Dæmi: Þetta er nú meira gullið, miklu flottara en meira bullið. Það er mín pæling að fólk breyti bara bulli í gulli. Það er miklu flottara. Ef þú ert að leita af gulli þá er best að fara til Suður Arabíu og leita þar af gulli. En mig langar svolítið að fara þangað en það kostar pening en það kemur af því að ég skelli mér þangað. En gull er lang flottast. Takk fyrir mig. Langaði bara aðeins að skrifa blogg. Gullkveðja Erna Gull eða Llug 
»
30.09.2007 22:39:08 / erna
Það er komið af afmælisbloggi. Það er ekki að verri endanum en Ale sem bjó til nafnið á síðunni á afmæli í dag. Hún er orðin 19 ára. 

Til hamingju með afmælið sæta. Eigðu góðan dag og ég hlakka til að sjá þig á morgun  Gullkveðja Erna Gull 
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|